Þjónusta.

Okkar markmið er skýrt – að einfalda þér lífið.

Okkar markmið er skýrt – að einfalda þér lífið.

Norda er þinn félagi í hugbúnaðarþróun. Við bjóðum upp á alhliða hönnunar- og hugbúnaðarþjónustu með áherslu á notendamiðaða nálgun, öflug kerfi sem virka og fallega, flæðandi hönnun sem gleður augað. Leyfðu okkur að sjá um það sem við erum virkilega góð í, svo að þú getir einbeitt þér að þínu.

1

Notendaupplifun – UX

Settu fólk í fyrsta sæti

Settu fólk í fyrsta sæti

Góð þjónusta kemur ekki af sjálfu sér. Lykillinn að framúrskarandi notendaupplifun liggur í því að skilja þarfir og væntingar þinna notenda. Allt annað er bara gisk. Við hjá Norda höfum ástríðu fyrir því að skapa framúrskarandi notendaupplifanir sem hitta beint í mark. Við aðstoðum þig við að móta áskoranir, bera kennsl á tækifæri og skilja þarfir þeirra sem þú vilt ná til með árangursríkri samsuðu hönnunarhugsunar, stefnumótunar og greininga.

2

Notendaviðmót – UI

Falleg og flæðandi notendaviðmót

Falleg og flæðandi notendaviðmót

Hönnuðirnir okkar eru með víðtæka reynslu í því að hanna grípandi og notendavænar lausnir sem byggja á þörfum notenda. Hvort sem þig vantar lendingarsíðu, sérsniðna alhliða viðmótshönnun sem fellur að þínu vörumerki eða öflugt hönnunarkerfi sem þarf að skapa frá grunni þá erum við til staðar fyrir þig.

Samstarfið við Norda hefur gengið mjög vel. Starfsfólk hefur reynst okkur vel, eru fljót að klára verk og gera það vel. Forritarar verkefnisins hafa verið okkar 100% fólk, ávallt tilbúin að hjálpa öðrum teymismeðlimum og fá öll okkar meðmæli.

Bjarni Þór Kjartansson & Perla Þrastardóttir - Verkefnastjórar hjá Reykjavíkurborg

Bjarni Þór KjartanssonPerla Þrastardóttir

Verkefnastjórar hjá Reykjavíkurborg

3

Þróun

Hugbúnaðarlausnir af öllum stærðum og gerðum

Hugbúnaðarlausnir af öllum stærðum og gerðum

Hvort sem þig vantar smáforrit eða að samþætta flókin kerfi þá getum við fundið hagkvæma lausn sem hentar fyrir þig. Forritararnir okkar eru flestum hnútum kunnug en sérhæfa sig í Node.js, Python og React. Við prófum svo og fínpússum með aðstoð Cypress og BrowserStack til að tryggja gæði og áreiðanleika vörunnar. Í stuttu máli sagt: Leyfðu okkur að græja þetta fyrir þig, við vitum hvað við erum að gera. Í alvöru.

4

Verkefnastjórnun

Fagleg verkefnastjórnun fyrir hámarksárangur

Fagleg verkefnastjórnun fyrir hámarksárangur

Án verkefnastjóra myndi sennilega lítið gerast. Þau eru vélstjórarnir sem knýja sköpunarskipið áfram. Á meðan við vinnum hratt og örugglega að þínum lausnum munu verkefnastjórar Norda vera þér innan handar í gegnum allt ferlið. Þau eru boðin og búin að svara öllum þínum spurningum og leggja sig fram við að tryggja blómlegt og skemmtilegt samstarf. Og sjá til þess að skilum öllu af okkur á réttum tíma og förum ekki yfir budget-ið.

5

Netverslun

Það er skemmtilegra að versla á netinu

Það er skemmtilegra að versla á netinu

Það er deginum ljósara að netverslun er komin til að vera. Ríflega 85% Íslendinga segjast versla reglulega á netinu og allar tölur benda til þess að netverslun eigi bara eftir að aukast með tímanum. Norda getur aðstoðað þig við að rata í hinum flennistóra frumskógi netverslunar. Saman sköpum við svo hugbúnaðarlausn sem hentar þínum þörfum og kemur þér rækilega á kortið.

6

Gervigreind

Vertu á undan samkeppninni.

Vertu á undan samkeppninni.

Eftir því sem tækninni fleygir fram aukast sífellt möguleikarnir. Markviss notkun gervigreindar er nokkuð ný af nálinni en býður upp á ýmsa spennandi möguleika. Norda býður upp á faglega og hreinskilna ráðgjöf þar sem við kryfjum saman þínar þarfir og komumst að því hvernig gervigreind getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum. Við notuðum til dæmis gervigreind til að fá innblástur fyrir þennan texta. Sniðugt, ekki satt?